
Hverfið byggðist upp á árunum 1920–1930, þegar mikill skortur var á íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Ástæður þessa voru takmarkaður innflutningur á byggingarefni undir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar og aukinn aðflutningur fólks til bæjarins. Á þessum árum var allt vöruverð mjög hátt og jafnframt ómögulegt að fá veðdeildarlán til húsbygginga. Þetta leiddi til þess að efnaminna fólk lenti í basli við að koma sér upp húsnæði og þurfti að láta sér nægja mjög lítil íbúðarhús. Knud Zimsen sem var borgarstjóri á þessum tíma var á þeirri skoðun að ekki mætti gera of miklar kröfur í því húsnæðisleysi sem ríkti, því mestu skipti að fá húsin upp. Hann mun hafa sagt við húsnæðislausa menn sem til hans leituðu í lok stríðsins: „Farið þið upp í holt og farið að byggja, ég skal láta ykkur hafa götulínuna“. Margir fóru að ráðum hans og komu sér upp skýlum sem dugðu. Oft var byrjað á að byggja kjallara sem fljótlega var flutt inn í en síðan varð gjarnan dráttur á frekari framkvæmdum.
Byggðin einkennist víða af þessum litlu og stundum hálfkláruðu húsum sem byggð voru af vanefnum og brýnni þörf fyrir húsnæði. Þessi bæjarhluti var mörgum þyrnir í augum og í grein um skipulagsmál í Morgunblaðinu 1923 efast greinarhöfundur um að hann eigi sér sinn líkan í veröldinni „hvað afkárasnið, óheilnæmi og smekkleysi snertir“. Þarna slái menn upp steypumótum og fullgeri veggi „án þess að hafa nokkuð hugsað um, hvernig listaverkið líti út, þegar það er fullkomnað“. Sérstaklega þótti Urðarstígurinn óvirðuleg gata. Sesselíus Sæmundsson, verkamaður í Reykjavík, segir frá því í viðtali 1957 að húsin á Urðarstíg hafi mörg hver þótt vægast sagt undarleg ásýndum, enda hafi þau „flest verið byggð af miklum vanefnum, sum úr orgelkössum og bárujárni, sem sjómenn og verkamenn tíndu að úr ýmsum áttum“.
Á 3. áratugnum komst nokkur skriður á skipulagsmál í bænum. Árið 1921 voru samþykkt fyrstu skipulagslögin fyrir kauptún og sjávarþorp og í framhaldinu var lagður fram skipulagsuppdráttur að Reykjavík sem bæjarstjórn samþykkti árið 1927. Þar var gert ráð fyrir samfelldum röðum tveggja og þriggja hæða steinhúsa meðfram flestum götum, en slík skipulagsgerð er nefnd blokkbygging eða randbyggð og þekkist m.a. frá Kaupmannahöfn og Berlín. Voru menn sammála um að húsnæði sem þetta væri hagkvæmast í byggingu og myndi henta vel efnalitlu fólki. Þau steinsteyptu hús sem reist voru á þessu svæði á 3. áratugnum virðast flest hafa verið byggð með þessar skipulagshugmyndir í huga. Þessi hús voru yfirleitt frá upphafi teiknuð og skipulögð út frá því að þau yrðu hluti af samfelldri röð tvílyftra eða þrílyftra húsa. Jafnan var þó einungis byggt lítið einlyft hús til að byrja með, sem síðan var stækkað og oft hækkað á næstu árum, þó að fæst húsanna hafi nokkurn tíma verið stækkuð í þá mynd sem ætlunin var upphaflega.
Goðahverfið austan Njarðargötu er ekki á dagskrá í þessu myndasafni og ekki verður gengið um þær götur að sinni. Þar voru reist veglegri hús í stórum görðum, við Freyjugötu, Sjafnargötu og Fjölnisveg. Húsin stóðu jafnan norðanmegin í görðunum, svo þar nyti sem best sólar. Höfundar þess skipulags voru einkum Guðmundur Hannesson læknir og Guðjón Samúelsson arkitekt.Heimild: Húsakönnun. Skýrsla 143. Minjasafn Reykjavíkur