Lokastígur 9. Byggt 1926 eftir teikningum Einars Erlendssona arkitekts. Stíllinn er steinsteypuklassík: Regluleg og samhverf gluggasetning, steypt þakskegg, hæðarbönd sem skilja sökkul frá efri hæðum og ávöl húshorn með horngluggum. Ein af merkustu spákonum Reykjavíkur átti um tíma heima á Lokastíg 9 (1930-1935). Hún hét Gíslína og tók hún eina krónu fyrir spádóminn.