Myndin fannst ekki!
Mynd 6

Lokastígur 16. Þarna var byggt tvílyft timburhús árið 1924. en það brann til grunna í miklum eldsvoða 24. janúar 1934. Á lóðinni var svo byggt tvílyft steinsteypuhús í fúnkisstíl eftir teikningum Þorleifs Eyjólfssonar arkitekts. Árið 1957 var þaki hússins breytt í núverandi mynd og ris þess hækkað upp í heila hæð að aftanverðu. Auk þess var settur stór kvistur eftir endilöngu þakinu að framanverðu.