Bragagata 16. Jafnan hafa verið uppi áætlanir um stórfelldar breytingar á skipulagi borgarinnar, sem miða að því að þétta og hækka byggðina úti við göturnar og hreinsa til á baklóðunum. Á sama tíma og Morgunblaðshöllin reis í Grjótaþorpinu var byggt stórt, þrílyft fjölbýlishús á lóðinni Bragagötu 16, innan um hina lágreistu byggð við Urðargötu og Bergstaðastræti.