Myndin fannst ekki!
Mynd 33

Freyjugata 25. Á lóðinni standa fjögur hús. Fyrst reis húsið lengst til vinstri, númer 25, byggt 1922. Það var einlyft án kjallara, ef marka má elstu teikningar. Ári seinna reis húsið lengst til hægri, númer 25A. Árið 1927 bættust við tvö hús á lóðinni, bakhús sem sést ekki á myndinni en er númer 25B, og húsið í miðjunni, númer 27C. Rúmum áratug síðar var húsið númer 25 hækkað til muna.