Baldursgata 8 var upphaflega Urðarstígur 2. Húsið var byggt 1922 og risinu bætt við 1933. Þá var þarna sölubúð fyrir úr og silfurvarning, en auk þess var íbúð í húsinu. Á 5. áratugnum var Guðjón Guðmundsson rafvirki með vinnustofu í húsinu, en í kringum 1960 var starfrækt þar Bíla- og búvélasalan. Uppúr 1970 var innréttuð íbúð í stað verslunarinnar á aðalhæð hússins.