Myndin fannst ekki!
Mynd 20

Urdarstígur 10. Ebeneser Bergsveinsson fékk leyfi fyrir húsinu í september 1920 og í nóvember sama ár var það fullbyggt. Þetta er einlyft hús og var upphaflega styttra en nú og með lægra risi. Upphaflega stóð húsið innar á lóðinni með gafl að Urðarstíg og framhlið að Bragagötu. Árið 1923 fékkst leyfi til að flytja húsið og byggja við það viðbyggingu og í janúar árið eftir var búið að snúa því og koma því fyrir á nýjum kjallara á núverandi stað á lóðinni.