Þórsgata 6. Einlyft bárujárnsklætt timburhús með kjallara og risi, byggt árið 1920. Húsið hefur verið til umræðu vegna aldurs þess, og hefur eigandinn sótt um að rífa húsið og byggja í staðinn nýtt fjölbýlishús en ekki fengið það samþykkt. Hann segir að Hjálmar Sveinsson hafi sagt við sig: "Þú verður bara að kveikja í helvítis kofanum. Láta hann bara brenna, þá er málið leyst".