Lokastígur 28. Hús þetta var byggt árið 1922 eftir teikningu Guðmundar H. Þorlákssonar. Guðmundur teiknaði einnig húsið nr. 28a sem byggt var á sama tíma við hliðina og er sambyggt þessu húsi. Í báðum tilvikum var einungis byggð ein steinsteypt hæð með risi til að byrja með þó að bæði húsin væru upphaflega teiknuð sem tvílyft. Síðan hafa bæði húsin verið hækkuð í áföngum, þó ekki samtímis, og bætt við þau kvistum auk annarra breytinga.