Myndin fannst ekki!
Mynd 8

Týsgata.Húsið fremst á myndinni vinstra megin er Týsgata 8, reist árið 1934 eftir teikningum Einars Erlendssonar. Á jarðhæðinni var fyrst Ávaxtabúðin í tvo áratugi, síðan Náttúrulækningabúðin alllengi, og eftir það bókaforlag, gallerí og fleira. Aftar eru Týsgata 6 og 4, reistar 1921 og 1919. Hinum megin við götuna grillir í kvistinn á númer 3 og í Týsgötu 1, á horninu við Skólavörðustíg.