Urdarstígur 4. Leyfi fékkst fyrir húsi á lóðinni í nóvember 1920. Í febrúar 1922 var húsið enn í smíðum, en þá fékkst leyfi til að byggja skúr norðan við það og breyta innréttingu í kjallara. Í október sama ár taldist það fullbyggt. Húsið er óbreytt að mestu frá upprunalegri gerð, utan þess að breytt hefur verið um klæðningu.