Þórsgata 5. Húsið er byggt 1930 og er dæmigert fyrir neðri hluta Þórsgötu, þar sem reist eru hús í anda randbyggðar með aðgang að bakgarði. Stóru steinsteyptu húsin beggja vegna götunnar eru flest reist á árunum 1927-1935, nokkuð seinna en flest húsin við Lokastíg. Árið 1983 var ákveðið að Óðinsgata yrði vistgata, að hollenskri fyrirmynd að sagt var.