Páll Einarsson langafi minn (1868-1954), eiginmaður Sigríðar Thorsteinson
Páll lauk lögfræðiprófi frá háskólanum í Kaupmannahöfn 15. júní 1891. Hann var skipaður sýslumaður í Barðastrandarsýslu 1893 og sat á Vatneyri við Patreksfjörð. Árið 1999 varð hann sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Páll var borgarstjóri í Reykjavík árin 1908-1914; fyrstur manna til að gegna því embætti. Loks varð hann hæstaréttardómari 1919 og gegndi því embætti til ársins 1935.
Árið 1920 nýtti Reykjavíkurbær lagaheimild til að taka Höfða leigunámi til að bregðast við húsnæðisskorti og var Páli fengið húsið til afnota. Á þessum vef eru hópmyndir teknar undir húsvegg á Höfða þegar Páll bjó þar með sinni fjölskyldu.
Nokkrum árum eftir að Sigríður Thorsteinsson féll frá kvæntist Páll systurdóttir hennar og nöfnu, Sigríði Siemsen, dóttur Þórunnar Thorsteinson. Þau eignuðust sex börn saman:
Einar Baldvin (1912-2011)
Sigríður (1913-1941)
Þórunn (1915-1927)
Franz Eduard (1917-2005)
Ólafur (1921-2011)
Þórunn (1932-2016)