Sigríður Thorsteinson langamma mín er önnur frá vinstri á myndinni. Þarna eru líka foreldrar hennar og tengdafólk. Myndin er tekin 1894 eða 1895, skömmu eftir að hún giftist Páli Einarssyni.
Fullorðnir á myndinni, talið frá vinstri:
Árni Thorsteinson landfógeti
Sigríður dóttir hans, langamma mín
Soffía Kristjana Thorsteinson, móðir Sigríðar
Þórunn, eldri systir Sigríðar
Helga Einarsdóttir mágkona Sigríðar
Jórunn Norðmann, svilkona Sigríðar og systir Helgu
Jón Norðmann, eiginmaður Jórunnar
Barn fremst á myndinni: Árni Siemsen (f. 1888), sonur Þórunnar
Hér er vefsíða þar sem tengslin milli fólksins eru teiknuð upp