Sigríður Thorsteinson langamma mín (1872-1905), eiginkona Páls Einarssonar
Systkini Sigríðar voru Hannes bankastjóri Íslandsbanka, Þórunn gift Franz Siemsen sýslumanni, Árni tónskáld og ljósmyndari, kvæntur Helgu Einarsdóttur (systur Páls Einarssonar langafa míns) og Bjarni. Þarna voru því systkinin Sigríður og Árni gift systkinunum Páli og Helgu.
Árni segir fallega frá því í Harpa minninganna þegar hann heimsótti systur sína og mág á Patreksfirði (þar sem Páll var þá sýslumaður) og féll við fyrstu kynni fyrir Helgu systur Páls, sem hann síðar kvæntist.
Sigríður hafði menntað sig í myndlist í Konunglegu akademíunni í Kaupmannahöfn og hér má sjá nokkur verk eftir hana.
Þegar Sigríður andaðist orti Guðmundur Guðmundsson Rósin í minningu hennar og Árni tónskáld bróðir hennar samdi lag við ljóðið og það var sungið yfir moldum hennar. Hér er Andri Björn Róbertsson að syngja Rósina (á YouTube).