|
Þessi vefur er ætlaður sem kennsluefni í tölvustuddri stærðfræði samhliða kennslubókinni Diffurjöfnur og fylki - Reikningsbók fyrir framhaldsskóla. Hlutverk vefsins er að
Vefurinn auðveldar nemendum að skoða sýnidæmi í réttu umhverfi, þ.e. í tölvunni, og nota þau sem fyrirmyndir við lausn annarra verkefna. Dæmin eru öll leyst með töflureikninum Excel frá Microsoft og hann þarf að vera aðgengilegur á tölvunni til þess að hægt sé að skoða þau. Markmið námsefnisins er að nemendur Hlutverk töflureiknis í námsefninu er tvíþætt: Á vefsíðunum eru margvísleg hugtök og aðferðir skýrð með lifandi dæmum í Excel og nemendur temja sér að nota töflureikni til ýmiskonar reikninga. Námsefnið hefur verið notað til kennslu í efsta bekk Verzlunarskóla Íslands. Forkröfur eru að nemendur kunni skil á algebru, þekki algeng föll eins og margliður, hornaföll og lógaritma og hafi þar að auki kynnst diffrun og heildun. Einnig þurfa nemendur helst að kunna til verka með Excel. Þeir sem hafa bókina undir höndum og vilja hafa aðgang að vefnum geta annað hvort skoðað hann á Skólaneti Verzlunarskólans eða sótt hann í heilu lagi sem zip-skrá og sett upp á eigin tölvu eða skólaneti. Notkun hans er öllum heimil. Bókin er til sölu hjá Offsetfjölritun og hana má líka sækja hér á vefnum (886 KB zip-skrá). Það er eðli vefs af þessu tagi að hann vex stöðugt og er í sífelldri endurskoðun. Allar athugasemdir og hugmyndir um viðbætur og breytingar eru vel þegnar. Sendið tölvupóst til freyrth@hotmail.com |