
Bókhlaðan í Flatey var reist 1864 af Flateyjarframfarastiftun, sem stofnað var 1833 af Ólafi Sívertsen prófasti og konu hans Jóhönnu Friðriku Eyjólfsdóttir. Bókhlaðan er elsta bókhlaða landsins. Þegar Flateyjarkirkja var byggð 1926 var bókhlaðan flutt innar á Bókhúsaflöt á þann stað sem hún stendur í dag. Húsið var friðað 1975, en endurbyggt 1979-1988 í sinni upprunalegu mynd undir forystu Hjörleifs Stefánssonar.
Bókhlaðan hýsti til langs tíma hið merkilega bókasafn Flateyjar, sem nú að stórum hluta hefur verið komið til Landsbókasafnsins. Í dag er eingöngu lítill hluti þessa merkilega bókasafns, aðallega bækur fræðilegs eðlis, geymdar í Bókhlöðinni.