Einmitt.is

Ættartré og fjölskyldumyndir

Benedikt Jónsson 1833-1925

Benedikt var eitt af 14 börnum sr. Jóns Þorsteinssonar, sem Reykjahlíðarættin er komin af. Ættartréið hér er sótt í bókina Reykjahlíðarætt sem kom út 1993, þannig að börn fædd eftir það er yfirleitt ekki hér að finna. Það er hins vegar hægur vandi að bæta í ættartréið ef einhver hefur áhuga á því.
Ættartré Benedikts Jónssonar

Valgerður Jónsdóttir 1771-1856

Valgerður Jónsdóttir var gift tveimur biskupum og átti afkomendur með báðum.
Fyrri maður Valgerðar var Hannes Finnsson og frá þeim er komin Finsen ættin. Ættartré þeirrar fjölskyldu er sótt í Slægtsbog for Familien Finsen sem kom út 1988. Seinni maður Valgerðar var Steingrímur Jónsson og afkomendur þeirra kölluðu sig Johnsen.
Að seinni manni sínum látnum bauð Valgerður Landsbókasafni allt handritasafn biskupssetursins, alls 393 bindi, til kaupa. Þann 5. júní 1846 undirritaði konungur formlegt leyfi á kaupunum og er sá dagur talinn stofndagur handritasafns Landsbókasafns.
Ættartré Finsen-ættarinnar í sjö ættliði
Ættartré Johnsen-ættarinnar í sjö ættliði

Sjafnargötu fjölskyldan

Theódór Jakobsson og Kristín Pálsdóttir bjuggu í rúman áratug með börnum sínum á Sjafnargötu 11 og er fjölskyldan kennd við það. Ættartréið var tekið saman árið 2023 þannig að yngstu afkomendurna vantar, en það er hægur vandi að bæta í ættartréið ef einhver hefur áhuga á því.
Ættartré Sjafnargötu-fjölskyldunnar

Gamlar ljósmyndir

Myndaalbúm Hannesar Thorsteinsson, langömmubróður Freys
Ljósmyndir af formæðrum Freys og þeirra fólki