Myndin fannst ekki!
Mynd 39      

Laugavegur 55. Þarna var verslunin Von á fyrri hluta 20. aldar. Verslunina Von rak Gunnar Sigurðsson í þrjá og hálfan áratug og verslaði bæði með unnar og ferskar kjötvörur. Hann átti líka býlið Gunnarshólma skammt fyrir utan bæinn. Húsið var rifið og nýtt byggt, en nafninu haldið.