Myndin fannst ekki!
Mynd 37      

Laugavegur 46-50. Húsið fremst á myndinni er númer 50 og var byggt 1900. Það er eina húsið hér sem aldrei hefur verið breytt mikið. Timburhúsið hægra megin við það (númer 48) var reist 1899 og steinsteypta viðbyggingin 1919. Timburhúsið lengst til hægri (númer 46) var reist 1905 og var fyrir áratug fært í átt til fyrra horfs eftir að hafa verið í niðurníðslu.