Bankastræti 3. Þarna hóf Landsbankinn starfsemi sína.
Húsið var reist 1882 úr höggnu grágrýti. Fjórum árum síðar hóf Landsbankinn þarna starfsemi sína og var þá nafni götunnar breytt úr Bakarabrekka í Bankastræti, því það þótti virðulegra. Þarna var lengi rekin prentsmiðjan Herbertsprent og Bókaverslun Sigurðar Kristjánssonar. Sigurður þessi rak líka bókaútgáfu og gaf fyrstur manna út Íslendingasögurnar í ódýrri útgáfu um aldamótin 1900. Verslunin Stella hefur verið þarna frá 1942, stofnuð og rekin af afkomendum Sigmundar Guðmundssonar sem byggði húsið.