Laugavegur 11. Eiginlega þrjú sambyggð hús.
Húsið hefur hýst margvíslega starfsemi en þekktast er það fyrir veitingarekstur. Þarna var matsalan Fjallkonan 1922-1927 í vestasta hlutanum. Sjóaraknæpan White Star var þarna 1932-1935 og 1050 opnuðu Silli og Valdi þarna einn af Adlon stöðum sínum (annar er nú Prikið). Sá staður var oft nefndur Ellefean og var sagður vinsæll af hommum og bóhemum. Veitingahúsið Ítalía opnaði þarna 1988.