Stóra hvíta húsið er Bankastræti 11. Þar var byggingavöruverslunin J.Þorláksson & Norðmann þegar við vorum ung.
Byggingavöruverslunin J. Þorláksson & Norðmann var stofnuð þegar Jón Þorláksson, fyrrverandi landsverkfræðingur (síðar borgarstjóri og forsætisráðherra) seldi frænda sínum, Óskari Norðmann, helmingshlut í fyrirtækinu Jón Þorláksson Byggingarefnaverslun, árið 1923. Jón hafði stofnað þá verslun árið 1917 þegar hann lét af embætti landsverkfræðings og hafði verslunin aðsetur í kjallara og bakhúsi í húsi hans við Bankastræti 11. Verslunin fluttist úr Bankastræti árið 1969.