Soffía Kristjana Thorsteinson langa-langamma mín (1839-1914), með tveimur elstu börnum sínum Hannesi og Þórunni. Myndin er væntanlega tekin 1867.
Soffía Kristjana, eða Sophia Christiana uppá dönsku, var gift Árna Thorsteinson landfógeta (1828-1907) og átti með honum fimm börn - Hannes (1863-1931), Þórunni (1866-1943), Árna (1870-1962), Sigríði langömmu mína (1872-1905) og Bjarna (1875-1913).
Árið 1866 kom Sigfús Eymundsson til landsins og hóf feril sinn sem fyrsti atvinnuljósmyndari á Ísland og þessi mynd er tekin ári síðar. Myndin er því í hópi elstu íslenskra ljósmynda.
Það er rétt að nefna að þessi mynd af Soffíu Kristjönu er ekki er úr mínu safni heldur tekin upp úr bók (Reykvíkingar - Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg).