Hér fyrir neðan eru tenglar á allar myndirnar úr albúmi Hannesar og á fjórar af lausu myndunum. Myndirnar sem birtast hafa flestallar verið svolítið lagfærðar, kontrastur aukinn og skemmdir faldar. Þeim fylgir tengill á upphaflega skannið í enn meiri upplausn (1200x1200 dpi) án nokkurra lagfæringa, ef einhver vill sjá það. Einnig fylgir tengill þeim myndum sem birtar hafa verið á FaceBook og þannig er hægt að skoða þær umræður sem þar hafa orðið um hverja mynd.
Myndirnar eru dálítið mismunandi að stærð; þær stærstu um 10x15 cm. Eftir skönnun eru stærstu lagfærðu myndirnar meira en 3400x2300 punktar að stærð og birtast því mikið minnkaðar á vefsíðunni. En ef smellt er á mynd birtist hún í fullri upplausn og geta menn þá rýnt að vild í smærri atriði. Þegar aftur er smellt á myndina minnkar hún aftur í fyrri stærð á vefsíðunni.
Til hagræðis fyrir þá sem vilja gera athugasemdir eða sækja myndir þá eru myndirnar úr albúminu eru númeraðar þannig að vinstri og hægri mynd úr fyrstu opnu heita 1A og 1B, myndir á næstu opna heita 2A og 2B, o.sv.frv. Vefsíðan sem birtir mynd 1A heitir 1A.html og myndin sjálf 1A.jpeg. Lausu myndirnar fjórar eru ekki númeraðar.
Loks ber að nefna að þessi vefur er sniðinn að sæmilega stórum skjá og hentar ekki fyrir síma.